top of page

NÁÐU HÁMARKS ÁRANGRI 

✨Æfingar hannaðar af sjúkraþjálfara & hlaupara✨

Afrit af IMG_3866_edited.jpg

,,Hugsaði nokkrum sinnum

til þín í hlaupinu því

VÁ skrokkurinn var æði

og þú átt svo mikinn þátt í því.’’

 

Bakgarðshlaupari

,,Er að elska þessar æfingar!

Svo þægilegt að klæða sig og byrja og að þú leiðir allan tímann í gegnum æfinguna.

 

Bara takk fyrir æðislegt prógram! ‘’

"Verð að segja þér hvað mér finnst þetta geggjað prógram.

Ég finn strax mun í hlaupunum og bara dagsdaglega.

Töfraæfingar!"

HVER ER ANNA HLÍN? 

medium_sjukrasport_lowres_0188_f5a88f66eb.jpg

Hæ, ég heiti Anna Hlín og er sjúkraþjálfari og hlaupari. Ég hef starfað sem sjúkraþjálfari síðan 2015 og vinn í Sjúkrasport í Sporthúsinu í Kópavogi.

Ég hef alla tíð haft brennandi áhuga á þjálfun og hreyfingu. Ég hef fjölbreytta reynslu af íþróttum, líkamsrækt og þjálfun, en í dag eiga hlaup hug minn allan. Ég elska útiveru og náttúruna – mér líður best á fjöllum, en malbikið er ágætt inn á milli.

Ég er frekar feimin og læt lítið fyrir mér fara, en þegar ég stend fyrir framan fólk að þjálfa hverfur öll feimni og ástríða mín fyrir starfinu fær að njóta sín. Það er nefnilega skemmtilegasta vinna í heimi að þjálfa og fræða fólk með áhuga og markmið.

Ég er þriggja barna móðir og eiginkona, og flestir dagar eru stútfullir af hversdagsleika og gæðastundum með mínu fólki.

Ég stofnaði StrongRunIceland árið 2023 fyrir fólk eins og mig – hlaupara sem vilja ná árangri, bæta sig og fyrirbyggja meiðsli, en hafa jafnframt nóg að gera í verkefnum lífsins.

 

Æfingarnar mínar eru stuttar, hnitmiðaðar og sérhannaðar fyrir hlaupara.

Plan

HVAÐA ÁSKRIFT HENTAR ÞÉR?

Æfingarnar eru allar settar upp sem myndbandsæfingar þar sem ég leiði þig í gegnum æfinguna frá upphafi til enda.

Sérhæfðar æfingar með þarfir hlaupara í huga.

Þannig náum við hámarksárangri á sama tíma og við lágmörkum tímaeyðslu.

 

Þú þarft bara að ýta á „play“ og leyfa mér að leiða þig áfram!

Plank in Park

BASIC - ÁSKRIFT 

✅Tvær nýjar æfingar á viku 

  • Hver æfing 20-30 mínútur, stutt, hnitmiðuð, krefjandi

  • Sérhannaðar styrktaræfingar fyrir hlaupara

  • Nýjar æfingar í hverri einustu viku! 

Verð: 7.990 kr á mánuði

Segja þarf upp áskrift 3 dögum fyrir næsta greiðsludag

Fitness Resistance Training

PLUS - ÁSKRIFT

✅Tvær nýjar æfingar á viku - þær sömu og í Basic áskrift

✅Aukaefni: 

  • Liðkandi æfingar fyrir hlaupara

  • Kvið&mjaðma æfingar fyrir hlaupara

Verð: 9.990 kr á mánuði

Segja þarf upp áskrift 3 dögum fyrir næsta greiðsludag

Home Workout Session

PREMIUM - ÁSKRIFT
ALLUR PAKKINN! 

 ✅Kröftugur styrkur fyrir hlaupara​

  • Tvær æfingar á viku 35-50 mín hver æfing 

  • Samtals 8 vikur - eða 16 æfingar

  • Upphaflega prógramið frá StrongRun sem hefur hjálpað fjölda hlaupara í gegnum tíðina. 

✅Aukaefni: 

  • Liðkandi æfingar fyrir hlaupara

  • Kvið&mjaðma æfingar fyrir hlaupara

Tvær nýjar æfingar í viku - þær sömu og í Basic áskrift

Verð: 12.990 kr á mánuði

Segja þarf upp áskrift 3 dögum fyrir næsta greiðsludag

Æfing
bottom of page